Ekki alveg hætt......

nei nei er nú ekkert búin að gefast upp á fjöllum og fellum né annarri hreyfingu. Í gær fór ég á Esjuna í 5 sinni þetta sumarið. Rölti hana upp að Steini í blíðskapar veðri og naut útsýnis og sólar. Í dag fór ég svo á Keili í annað sinn þetta sumarið. Það var líka frábær ferð og algjörlega nauðsynleg fyrir daginn, hefði annar endað á svölunum í vonlausu sólbaði Smile

Annars er ég búin að skrá mig í 10 KM hlaup í Reykjavíkurmaraþoninu þann 22 ágúst. Og nú á það hug minn allan. Er að undirbúa það því ég hef aldrei hlaupið þessa vegalengd og reyndar aldrei verið skokkari. Ég fann frábæra hlaupa áætlun inni á hlaup.is. Átta vikna áætlun sem endar á 10 KM hlaupi þann 22 ágúst. Ég tek þessa áætlun mjög hátíðlega og fer eftir henni frá A-Ö. Það eina sem ég þarf að gera í leiðinni er að létta mig um nokkur kg og þá er ég góð.

Hér geti þið séð áætlunina góðu: http://hlaup.is/displayer.asp?cat_id=34&module_id=220&element_id=1319&nl=true

Vala Heart


« Síðasta færsla

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband